![Copertina del podcast](https://d3wo5wojvuv7l.cloudfront.net/t_square_limited_480/images.spreaker.com/original/5798b3e37b75b8d1dd92a118fd1f9d6c.jpg)
Contatti
Info
Hlaðvarp
![Copertina del podcast](https://d3wo5wojvuv7l.cloudfront.net/t_square_limited_480/images.spreaker.com/original/5798b3e37b75b8d1dd92a118fd1f9d6c.jpg)
-
#326 Brynjar Níelsson - Hættur ef að xD krefst prófkjörs
30 GIU 2024 · Brynjar Níelsson er nýjasti gestur Þórarins. Í þættinum er rætt um stjórnmálin, nýju Samfylkinguna, útlendinguamál og fjölmenningu, þróunina í Evrópu og þá flokka sem hafa verið kallaðir öfgahægrihóparnir, hvort að Brynjar hyggst bjóða sig fram á lista fyrir næstu Alþingiskosningar og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling -
#325 Guðrún Hafsteinsdóttir - Útlendingamál: Lokuð búsetuúrræði, fingrafaraskannar og fækkun umsókna
27 GIU 2024 · Þórarinn ræðir við Guðrúnu Hafsteinsdóttur um stöðu útlendinga- og lögreglumála. Meginþorri hlaðvarpsins fer í að ræða hluti sem snúa að útlendingamálum og fjallað er um lokuð búsetuúrræði, pólitíkina, landamærin, menningu og gildi, erlenda þróun og það sem að Guðrún kallar séríslensk lög. Einnig er fjallað um skólamál, velferðarkerfið, stjórnmálin á Íslandi og fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling -
#324 Frosti Logason - Umbrotatímar vegna hægri sveiflu í Evrópu
24 GIU 2024 · Þórarinn ræðir við Frosta Logason, útvarps- og hlaðvarpsstjórnanda veitunnar Brotkast. Í þættinum er rætt um hið nýja hægri í Evrópu, stjórnmálin á Íslandi, #MeToo, Vestræn gildi og viðmið, trúleysi og Kristna trú og margt fleira. Hlaðvarpið í heild má finna á pardus.is/einpaeling -
#323 Margrét Valdimarsdóttir - Eru tengsl milli fjölda innflytjenda og glæpatíðni?
21 GIU 2024 · Þórarinn ræðir við Margréti Valdimarsdóttur, afbrotafræðing og dósent við Háskóla Íslands um nýja skýrslu Margrétar um tengsl ungra innflytjenda við samfélagið. Sérstök áhersla er lögð á glæpatíðni á Norðurlöndunum og rætt hvort að rekja megi fjölgunina til aukins fjölda innflytjenda. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling -
#322 Guðmundur Skúli - Óafskipt lesblinda veldur stríði í kennslustofunni
18 GIU 2024 · Þórarinn ræðir við Guðmund Skúla Johnsen, formann lesblindrafélagsins. Guðmundur telur að mikið af þeim samfélagsmálum sem eigi sér stað megi með beinum eða óbeinum hætti rekja að miklu leiti til lesblindu. Stjórnvöld geri ekki nægilega mikið til þess að koma til móts við fólk með lesblindu, ungt fólk, og sérstaklega strákar, verði því fyrir mismunun sem brýst út í óæskilegri hegðun. Þeir einstaklingar sem að eru ekki greindir með lesblindu séu einnig í mun meiri áhættuhóp til þess að fara út af sporinu og færir Guðmundur Skúli rök fyrir sínu máli með því að benda á að 80% fanga í Finnlandi séu lesblindir. Til að styrkja þetta framlag má fara inn á www.pardus.is/einpaeling -
#321 Stefán Baxter - Gervigreind mun valda meiri breytingu en uppgötvun rafmagnsins
15 GIU 2024 · Stefán Baxter er frumkvöðull sem að hefur komið af fjölmörgum verkefnum sem varða tæknigeirann og starfar í dag sem framkvæmdarstjóri snjallgagna. Hann er viss um að gervigreindin muni koma til með að umbylta okkar hugmyndum um störf og að eftir tíu ár verði hlutirnir orðnir allt öðruvísi. - Hvernig verður þín persónulega gervigreind? - Verða tölvunarfræðingar ónothæfir? - Hvaða störf munu hverfa? - Hvernig mun upplýsingaöflun breytast? Þessum spurningum er svarað hér. Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling -
#320 Jakob Birgisson - Bakslag í gríninu og grínið í bakslaginu
9 GIU 2024 · Þórarinn ræðir við Jakob Birgisson um ýmis mál sem snýr að gríni og bransanum í kringum uppistandið. Fjallað er um hvort að grínistar eigi að skipta sér að stjórnmálum, forvirka meðvirkni, hvort að spuni sé skemmtilegur, veitt er hjónabandsráðgjöf, rætt um föðurlaus börn, þróun framtíðarinnar, heimsmálin og íslensk stjórnmál. Til þess að fá fullan aðgang að þessu hlaðvarpi má fara á www.pardus.is/einpaeling -
#319 Brynjar Karl - Breiðholtið, þjálfun, vandamál og lausnir
7 GIU 2024 · Þórarinn ræðir við Brynjar Karl, körfuboltaþjálfara og frumkvöðul. Brynjar hefur reynslu af því að starfa í Efra Breiðholti og í þættinum lýsir hann reynslu sinni af því að starfa þar, hvernig eigi að takast á við félagsleg vandamál, þjálfun, markmið, hvað það þýðir að vera sterkur einstaklingur, framtíðina og margt fleira. Til að styrkja þetta framlag má fara á www.pardus.is/einpaeling -
#318 Albert Jónsson - Loftslagsmálin verða ekki leyst af alþjóðakerfinu
4 GIU 2024 · Þórarinn ræðir við Albert Jónsson um alþjóðakerfið, áhrif þess og praktískt eðli er varðar stríðið á Gaza, loftslagsmálin, stríðið í Úkraínu, alþjóðasáttmála og margt fleira. - Getur alþjóðakerfið leyst loftslagsvána? - Hvaða áhrif hefur stríðið á Gaza á alþjóðakerfið? - Hvað mun gerast í Úkraínu? - Er Ísland á villigötum í loftslagsaðgerðum? Hlaðvarpið í heild má finna á www.pardus.is/einpaeling -
#317 Mads Gilbert - Israel, Gaza, and the Palestinian people
31 MAG 2024 · Tóti speaks with Mads Gilbert, a physician and a specialist in anesthesiology who has been fighting for the Palestinian cause for decades. - What is happening in Gaza today? - How can the conflict be resolved? - Are the numbers provided by health officials in Palestine to be trusted? - What does this conflict mean for the political situation in the Western world? All of these questions, and more, are answered in this podcast.
Copyright 2024 - Spreaker Inc. an iHeartMedia Company